Slayer Partý
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1653 dögum
18.02.2008 12:26:58 / skastrik

Reunion

Jæja.. mér fannst svona við hæfi að halda þéttri blogg dagskrá áfram hér á skastrik og festa inn nokkur orð.

Það sem ber hæst þessa dagana eru endurfundir 1. mars. Orri á götunni vill meina að Theodór(Tebbi) ætli að dusta rykið af bleika bolnum sínum og dansa solo dans fyrir hönd sveittra bringa á þessum tímamótum. Tebbi segist vera tilbúinn að sýna nýjan dans sem hann hefur verið að setja saman undafarin misseri. Theodór byndur miklar vonir við að þær 15 sek. af frægð,sem hann öðlaðist þegar sveittar bringur voru upp á sitt besta, fái þarna framlengingu.

Einar Jóns hefur gefið það út að hann ætli að selja sig dýrt til að vinna hjarta Olgu á nýjan leik þetta sama kvöld. Hann hefur verið að gæla við það að dans með Tebba ef til þessa þarf, en ekkert hefur verið ákveðið.

Skemmti- og skipulagsnefnd kvöldsins hafa ákveðið að hafa fordrykki í Bryndó. Boðið verður upp á djús ásamt köldu gosi og horft verður á high-school reunion á risatjaldi.

Nokkrir einstaklingar  virðast vera ósáttir með að Ölvun ógildi miðann og hafi þessir menn ákveðið að plása til sóknar og vera með samkomu í hellisgerði. Þar verður boðið upp corona extra með lemon. Einnig verður Thodór með opinn bás ofan í skurði, hann segist ætla nota tækifærið og selja notuð föt.



 

Þorsteinn Skuli ætlar að mæta

                        

KV/SS


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 13:33:29 / skastrik

Rúnar kominn á KORTIÐ(týndi 4 kortun í þrándheimi)

Rúnar Svavarsson - Hvar ertu?

Óheppinn Íslendingur týndi kortaveskinu sínu hér í Þrándheimi. Veskið er fundið og er nú í höndum leigubílstjóra eins hér í borg, sem kom þessum upplýsingum á framfæri til Ívars Benediktssonar, blaðamann á Morgunblaðinu. Ívar bað mig um að henda þessu inn á vefinn, sem er auðvitað ekkert nema sjálfsagt:

"Á ferð minni frá íþróttahöllinni í gærkvöldi hitti ég leigubílstjóra sem fann fjögur kort í eigu Íslendings í sæti bifreiðar sinnar. Bílstjórinn vill koma kortunum til skila en m.a. kortanna er Mastercard greiðslukort. Kortin eru í eigu Rúnars Svavarssonar sem er fæddur 1987.

Bílstjórinn er með kortin í sinni vörslu. Hann heitir Dagfinn Hyran, farsími hans er 0047 915 67808. Hann langar að koma kortunum til skila til rétts eiganda og er Rúnari velkomið að hafa samband við Dagfinn."

Við vonum að Rúnar sé ekki farinn af landi brott en ef svo er þá getur hann sent mér tölvupóst á hjalti84@hotmail.com og ég skal nálgast veskið og koma með það heim til Íslands.

 Tekið af íblíðuogstríðu

Einnig er fínt viðtal við rúnar á Handbolti.is VEFTV

Rúnar þú ert að standa þig

KV /
SS


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 18:26:36 / skastrik

Ísland. Best í heimi?

Sælir nú 

Ó guð vors lands, ó lands vors guðs.

Þannig byrjaði það... Við hefðum átt að vera aðeins meira að segja að við værum bestir og við værum að fara að smóka þetta mót.  

Þessi leikur var bara eins og Ísland væru svona 4-5 ára smástelpur sem hefðu aldrei séð handbolta áður að keppa á móti einhverjum snargeðveikum stálmönnum.

Þeir voru bara skíthræddir allir. Alltaf þegar einhver fékk boltann, þá var eins og þeir væru að taka ”eldkúluna” (TM)  á þetta. ”takt þú’ann”, ” nei, þú!” 

Og alveg salí heimir porcha í seinni hálfleik.Þá drápum við svíagrýluna mar.... ha.... nei.

Á tímabili var 10 marka munur!. 10

Og eftir korter af seinni hálfleik vorum við búnir að skora 3 mörk.Það er safi....

Eini maðurinn sem var að standa sig var óli okkar stef.
Með alveg ruddalegar línusendingar og þegar hann tók sig til að skjóta, þá klíndi hann honum alltaf skeitinn inn. 
Og núna var að fréttast að hann væri meiddur og væri sennilega ekki meira með. 

Þannig að mér langar til þess að biðla til Fredda þjálfa að líta til íslands í sambandi við einhvern sem kemur í staðinn fyrir óla.  

Og ég vil hér með bjóða mig fram.Ég get dustað rykið af skónum og hárbandinu og skellt mér til Norge! 

Tommi til Norge!!

 

 Ég að fara að klín'ann í skeitinn með hollenska landsliðinu á HM '99

 

 

 

Kveðja.

 

Tómas "skeitinn'inn" Doddason

 

» 3 hafa sagt sína skoðun

30.12.2007 16:23:35 / skastrik

Seven Guys, only one survivor

Hinn margumræddi hátíðarpóker Skastriks fór fram á heimili EJ; EINAR JÓNSSON, í gær, laugardag. 7 leikmenn mættu til leiks og var spilað upp á hæstu upphæð sem hefur sést í poker hjá okkur strákunum. Sigurvegarinn var að fara ganga út með peningaverðlaun að andvirði 18.000 kr. Já þetta var mikil upphæð og var spennan og andrúmsloftið því einstakt. Einar J, Sigurjón, Tómas, Sigurbergur, Egill Strange, Kristján og Rúnar allir mættir með eitt markmið í huga, að vinna peninga

Pókerinn var varla hafinn þegar Egill var dottinn út, þannig að Egill pantaði Pjítsu. Tvær með pepp og Pipar og eina með pepp og svepp. Klukkutími var í pjítsu þannig að leikar héldu áfram og var Tómas næstur til að falla úr leik. Mikill vonbrigði fyrir þennan mikla pokerspilara sem var búinn að setja sér háleit markmið fyrir þetta kvöld. Það kom ekki á óvart að Sigurjón skyldi vera næstur að detta út. Spilamennskan sem Sigurjón sýndi var óefectrík og er það í raun ráðgáta hversu langt hann komst.

 

Pjítsan var búinn og aðeins fjórir leikmenn eftir, Einar, Sigurbergur, Kristján og Rúnar. ´
Rúnar var með mesta fjölda spilapeninga, Sigurbergur var annar og aðrir voru með minna. Einar hékk inni mun lengur en menn vildu og náði hann ítrekað að bjarga sér fyrir horn með mikilli heppni. En það kom að því að leikur Einars hrundi. Kristján var í basli og tapaði hann miklum peningum þegar Sigurbergur fékk tvö hús í röð og stuttu seinna var tími hans við borðið liðinn. 
Rúnar Svavars og Sigurbergur Sveins EINVIGI. Rúnar var með mun betri stöðu þegar inn í einvígið var haldið og auk þess var hann að fá mjög góðar hendur en Sigurbergur hins vegar ekki. þannig á endanum sigraði Rúnar og fagnaði hann full mikið að mati manna við borðið.

 

 

LÉLEGASTI LEIKMAÐUR : SIGURJÓN HILMARSSON
MESTU FRAMFARIR : KRISTJÁN HELGASON
PRÚÐASTI LEIKMAÐUR : TÓMAS INGI
BESTA VIÐHORF: EGILL STRANGE
ÞREYTTASTI LEIKMAÐURINN : EINAR JÓNSSON
MEST SOLID SPILAMENNSKA : SIGURBERGUR SVEINSSON

RÚNAR SVAVARSSON HÁTÍÐARMEISTARI SKÁSTRIKS 2007.

 

SS

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 11:56:21 / skastrik

Nýr Dagskráliður á Skástrik?!

Hæ Hæ

 

Heyrðu ég var að spá í með nýjan dagskrálið hér á Skástrik.

 

Hann heitir Gangrýni og er í flokknum “Snilld”

 

Ég veit að það er mikið af nördum þarna úti og líka fullt af venjulegu fólki líka.

 

Þannig að mér datt í hug að hafa gagnrýni.

Eða vikuleg gagnrýni á hvað sem er.

 

Má vera allt milli tölvuleikja til hamborgara.

 

Þetta verður þannig að eitthvað verður tekið fyrir og skrifað svona aðeins um það og endað með því að gefa því stjörnur frá 1-5.

 

Vonandi hafið þið gaman af því að glugga í þetta í framtíðinni.

 

En það má sjá hérna til hliðar að ég setti inn fyrstu færsluna.

 

Enjoy..

 

La’chauteu de la babb en du chaufeau.

 

Tom....


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 22:53:29 / skastrik

IKEA Jól

Sælir nú krakkar mínir.

 

Hó hó hó.

 

Enn önnur íslensk jól að ganga í garð.

Gaman að hvað fyrirtæki eru alltaf að ganga lengra og lengra í jólamarkaðsetningunni.

 

Eins og t.d. IKEA.

Þeir voru komnir með eitthvað big-ass skilti framan á sjoppuna sína sem stóð á
“ Jólin þín byrja í IKEA” í október! Já... í október, nánar tiltekið á sama tíma og seinasta færsla kom inn á skástrik. Og það er alveg laaaaangt síðan.

Og þetta gleypum við og kyngjum. Um leið og eitthver segir þér að jólin séu að koma, þá eru allir alveg “ já já, við þurfum nú að fara að drífa okkur að kaupa okkur jólatré ástin mín” eða “ ertu búinn að kaupa hamborgarhrygginn elskan mín?”.

 

Og kringlan og smáralind voru ekkert langt á eftir.

Þeir byrjuðu að auglýsa í sjónvarpinu upp úr nóvember birgittu haukdal í hvítum pels með einhvern rottuhund að syngja og tralla að versla og voða gaman. Og svo eru þeit búnir að skreyta allt í safa þarna.

 

Og annað með það.

 

Hvað er það að vera búinn að skreyta hérna um leið og það byrjar að kólna?

Það tekur því eiginlega ekkert fyrir þetta fólk að taka niður skrautið.

Haft einhvern sona litaskipti á ljósunum. Breytt yfir í gult rétt yfir páskana og þá er nú orðið svo stutt í jólin maður.

 

Jólin eiga að vera stress.

 

Fólk á ekkert að vera búin með allar jólagjafirnar í ágúst og búin að skreyta allt nokkrum vikum seinna.

Þetta á að vera þannig að þú ert kannski að skreyta uppúr 1. í aðventu og kaupa jólagjafirnar þá og kannski geyma 1-2 gjafir þangað til á þorláksmessu og vera í pínu stressi.

Því að ef að það er, stressið þ.e.a.s. , þá verður svo ógeðslega sweet að koma í jólamatinn á aðfangadag og vera laus við allt stressið og geta virkilega slakað á. Ohhhh... það er svo sweet maður, ertu að grínast...

 

Ef að einhver er ekki sammála þessu, þá getur hann bara hoppað upp í raaaassgetið( borið fram með USA-hreim) á sér

 

En að lokum vil ég segja hversu virkilega spenntur ég er fyrir hinu (árlega?) stórglæsilega hátíðarpókerkvöldi sem verður haldið milli jóla og nýárs á ónefndum stað hjá skástrik-meðlimum og öðrum góðum gestum.

 

En jæja.

 

Hó hó hó.

 

Tómas “safi” D’anglatere


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 21:20:07 / einarjons

handboltafréttir

Fyrir hönd nefndarinnar og hinna meðlima Skástrik Group þá óskum við Sberg/Sæberg Sveins til lukku og vonum að þú eigir eftir að halda uppi heiðri okkar Skástrik manna.

 

kveðja, nefndin

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

a


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 14:18:10 / skastrik

Heiðursfærsla

Sigurjón Hilmarsson, sá ágæti drengur, átti 20 ára afmæli 26. september og fær hann að sjálfsögðu heiðursfærslu hér á skástrikinu.

Fyrir hönd / group vill ég óska þér innilega til hamingju með þennan áfanga í lífi þínu, nú þurfum við ekki lengur að skilja þig einan eftir fyrir utan skemmtistaði bæjarins vegna þíns unga aldurs. Reyndu nú einu sinni að vera þér, fjölskyldu þinni og okkur strákunum til sóma þegar þú gengur einn á báti út í þessa stóru veröld.

  

  

Ég segi það fyrir hönd allra okkar hér í skástrik

........"SIR"........

 

Sigurbergur Sveinsson /


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 15:43:24 / skastrik

Back to the future með SS og skástrik

 hææ..

 

Var að skoða gamlar færslur og rakst á bæði  skemmtilega hluti og hluti sem eru bara alltof miklir. Sem dæmi má taka:

 

 

hvernig gaur er Beggi?

hálviti    11%

 

óþolandi   4%

 

semi gaur   4%

 

guðmundur júní   59%    

 

þolanlegur   22%

 

Ég ákvað að taka saman vel valda hluti og setja saman í einn skemmtipakka.   

En af mér að frétta er það nýasta að minns er orðinn starfsmaður á skemtistað i miðborg reykjarvíkur kenndur við Gauk á stöng,endilega poppið inn og kikjið á kapann.“SOGO” 

 

Strákurinn kom með eitt mjúkasta comeback í sögunni og vann afar þýðingarmikinn sigur 4-3 og hélt titlinum  “S´berg, the undisputed poolchampion of the world”  

skástrik vill veita Sigurjóni Hilmars. verðlaun fyrir lélegustu færslu sem rituð hefur verið frá stofnun   “NEFNDIN”

 

Menn skástriks hafa ekki vitað um þessa síðu í dágóðan tíma vegna þess að Kjartan í Strumpunum sagði að hann væri búinn að malla þessa síðu í pottinum sínum.“KriHel” 

Davíð fór heim með stelpu ættaða frá Tyrklandi, Iris Annü, en hún er hér í sumarleyfi út mánuðinn.   “Davíð ástfanginn í fyrsta sinn”.

 

Þeir sem hafa umgengist Einar Jónsson að undanförnu hafa væntanlega tekið eftir því hversu feitur hann er orðinn.“Sberg”

 

 “Mulligans, Pogo Loco, Bcm, Karioki og fleira og fleira og ekki má gleyma Svalachillinu flennifína né poppdiskóinu magnaða þar sem byrjaði að poppa yfir okkur líkt og enginn væri morgundagurinn.”“Davíð HH eftir Magalaga” 

“hvernig einhver bíl drusla kemur á fleigi ferð og hamrar aftan á þessa litlu micru sem kemur fljúgani á ógnarhraða aftan á mig við erum að tala um að 3 bíllinn var á svona 70-80 km hraða en það fyndna við þetta að beggi var ákurat að horfa á mig þegar ég sé þetta gerast og ég kem með einhver ógeðslega svip og beggi beygir sig ´niður í fósturstellingu og þetta var ekkert smá fyndið”“Jtan” 

“Kristín ælir í svefnpokann sinn”   (Tómas F)

“Hittum mömmu í pels” (SOGO) 

Við Sigurbergur vorum í Ensku í dag...Þessi dagur byrjaði með látum þar sem að ég svaf yfir mig og var semsagt ekki kominn til Begga kl. 10:05 eins og ákveðið hafði verið...Beggi hringdi í mig kl. 10:22 og spurði "hvað að gerast!!!?!!!"...ég spurði nývaknaður á móti, "hvað er að gerast?".  (KriHel) 

“mögnuð sundferð var farin i kvöld í laugina er kennd er við suðurbæ. Skástrikarar þar á ferð voru burkni, melur, slalli og klummpur. Slanislaf svaf yfir sig (samt var þetta kvöldferð;), og mætti klukkutíma of seint.” (guys)

 “hvað gerir maður ekki fyrir pening ..hittumst í helvíti” (Sogo 2004) 

 Við hæfi að enda þetta á orðum sem við þekkjum öll...

“ég vil þakka fyrir mig að þessu sinni ég kem aftur með færslu bráðlega en ég vil bæta einu við drengir að ekki fór ég í vinnu í morgun og ekki er það mér að kenna þið ættuð að taka ábyrðinna á ykkur að hafa haldið mér svo lengi hjá ykkur en ég bið að heilsa”

“Jtan”

 

 

 

KV S´berg #11


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 23:47:26 / einarjons

Þannig er nú það

Jájá gott fólk, ég var farinn að efast um að einhver nennti að kíkja inná þessa síðu þar sem enginn nennir að gera neitt, loforðin um bætta frammistöðu fljúga um allt en ekkert skeður en þetta kemur svosem ekkert á óvart þar sem meirihluti meðlima síðunnar kann varla að kveikja á tölvunni sinni, svona steinaldarlífsháttur gengur ekki lengi strákar mínir á gervihnattaöld.

Ekki mikið að ske hjá strákunum, reglulega kíkt á djammið þó en eitthvað gengur illa fyrir Begga að fara í sleik, reyndar finnst mér þessi stefnumótaþjónusta hjá Sogo og Elvu vera vafasöm...það eru loforð um að redda hinu og þessu en hvað ? Ekki er Beggi allavega búinn að fara í sleik uppá síðkastið þannig að við hinir getum ekki búist við mikilu, sei sei.

Davíð og Ponzi orðnir háskólaplebbar í Háskóla Reykjavíkur, ekki gátu þeir farið of langt frá Verzlunarskólanum enda endar verzlógleðin aldrei....svo fara HR menn líka alltaf á Hverfis sem henntar þeim rosalega vel, síðast þegar þeir sáust á öðrum skemmtistað þá vorum við busalingar að reyna troða okkur inn á Gauk á Stöng sem var rosalega hipp á þeim tíma. ullabjakk.

Sæberg hefur ekki lagt í háskólann með strákunum enda er hann í stífri þjálfun hjá Fjarðarkaupsmafíunni, auðvitað stefnir hann á að taka við fjölskyldufyrirtækinu en hans helsta verkefni þessa dagana er í starfsmannadeildinni að sortera stelpur eftir brjóstastærð enda þýðir ekkert annað en keppnis á kössunum í Fjarðarkaupum. Sigurbergur fintar Hörð Fannar í drasl og skorar.

Jtan Slanni er giftur, nýr bíll og barn á leiðinni. strákurinn heldur uppi fjölskyldu og svarar í símann hjá Vodafone við að aðstoða strákana í þessari síðu við að kveikja á tölvunni sinni og tengjast internetinu. Síðast sást til Jónatans þar sem hann var að gera tilboð í einbýlishús á Völlunum.

Sogo er að safna skeggi. Elva er ekkert rosalega sátt við skeggið en þetta verður hann að hafa enda vinnur Sogo alla daga í 30° frosti og slyddu og gefur ekkert eftir. Hann mætir líka í Iðnskólann til að klára smiðinn enda ætlar hann að smíða sitt eigið hús með íþróttasal til að eyða ellinni í. Sogo var einu sinni að vinna á gauknum við að þrífa upp ælu.

Tumi kominn með háskólagráðu í PES og þjálfararéttindi, hann sér um að þjálfa stelpur og stráka á aldrinum 7-10 ára til að Ísland geti átt einhverja von á því að sigra heimsmeistaramótið. Strákurinn er einnig að vinna uppí Félagsmiðstöðinni Verið en þegar heim er komið er Kristín búin að hita upp rúmið og setja TWENTYFOUR í tækið.

KriHel er að fara kaupa BYKO enda búinn að vinna þar núna í heil 10 ár. Er hann þar í föstu starfi við að setja saman rör og ætlar að bíða með háskólann rétt eins og Sæberg. Heyrst hefur þó að Kri sakni verzló svo mikið að hann standi alla morgna klukkan átta fyrir utan skólann og gefur fólki high-five.

Sjálfur er ég enn að hamast í Flensborg og vorkenna sjálfum mér hvað ég sé lengi í skóla þótt að ég sé ekki einu sinni elsti nemandinn. Fer í tónlistarskólann til að plokka bassa og fer svo á Kenny til að fita mig til þess að eiga einhverja von á að vera kallaður bassafanturinn í framtíðinni.

 

Jæja gott fólk, langaði bara að leyfa ykkur að skyggnast aðeins inn í heim okkar skástriks manna, og ef þið hélduð að við værum of uppteknir til að blogga þá er það ekki satt, við erum bara allir aumingjar.


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.08.2007 19:20:34 / skastrik

Djubb

Rosa gott kvöld af baki, þó það hafi vantað hina ýmsu menn þá var sá hópur sem var að mjög þéttur og fagur. Þetta byrjaði með ''Ber að ofan" party á Pravda. Hér koma punktar frá kvöldinu og seinustu vikum

*Beggi ætlaði í sleik

*Stjáni og Grjoni fóru í sleik

*Nebbanammi í naflanum á Grjóna

*Sigurjón Ældi ekki

*Davið sperhræddur

*Litprúðir drengir á djammi

*Egill örn sem dama á Aroma

*V.I.P á Hvebba

*Davið slakur á Hvebba

*Beggi fór í sleik við dyravörð

*Hittum mömmu í pels

*Séns í pelsinum

*Einar ældi á Dyravörðinn sem beggi for í sleik við

*shift

*Sigurjon á typpinu

*fórum til póllands á cafe victor

*Einar smalaði 140kílóa gaur út

*kristján sogo og beggi saman í sturtu

*Jónatan Tapaði í poker

*Beggi skeipaði á Einar og Runar og rauk á dyr

*Krissi er komin á fast með mömmu hanns Tedda

*Teddi+Krissi/sonur+faðir=Ha???

 

 

meira seinna


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 23:16:25 / skastrik

Júgga færsla

Stígðupp til okkar
Bent og BlazRocka
BLAZRocka Bent

HAFA HVERJUM EINASTA RAPPARA LEXÍU KENNT..!

JÁ! strákurinn hitti blazrocka í eyjum, Erpur Eyvinda forsprakki ROTTWEILER hundanna tók mig upp á sína arma í grunna pottinum í lauginni, hann hrósaði stuttbuxunum mínum(Hauka buxur), hrósaði þeim hásterft, ég hrósaði hans buxum einnig( buxur úr liðsgalla njarðvíkur í körfu) þar skyldu leiðir.

The image “http://image.kanshin.jp/img_2/20287/347272538.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

Svo ég haldi mig við undirheima rappsins þá sigraði ég Björn viðar í tveggja lotna einvígi fyrir norðan. Mínar rímur voru það þéttar að tuttugu manna dómaranefnd dæmdi mér sigur.. minn fyrsti sigur gegn Einfaranum er staðreynd.
 
 
The image “http://media.collegepublisher.com/media/paper851/stills/3dcb518eac5f6-80-1.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

 

Að því tilefni ætla ég að láta inn eina af okkar hörðustu MSN einvígum

S´berg(Sæberg) VS BVB( Einfarinn)

Beggi says: (10:04:38 PM)

Okei okei lay back fucker..
Vó.. þú veist það innst inni að þú ert búinn að tapa/ ekki skrítið því ég er búinn að skapa/ nýja vídd í að batla þig í mökk/ sjálfstraust þitt á augabragði sökk/ eins og titanic þegar það klesti á klaka/ það vita það allir, ég er þig að baka/ ég gef þér hnefahögg með focking orðum/ allt þitt líf er dottið úr skorðum/ þú ert ekki neitt í mínum focking huga/ ég hef þig sigrað, því læt ég þetta duga..

BVB says: (10:10:30 PM)

okokokok! orðinn fær og allt það/nema hvað ég stíg upp í dag/
og skelli öllum mínum skuldum á þig/
að reyna meiða mig/
gengur bara illa/
þú hlýtur að vera með kvilla/ orðinn veikur heldur að þú sért heitur/ þú veist ég er bvb alltaf jafn feitur/ og alltaf jafn góður/ betri en hunts sósur/ vinn þig alltaf sósaður og líka edrú/ æjæjæjæj þetta er búið fokk jú!!!

 

 

SS /

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 23:26:04 / skastrik

I pity the fool....

Jæja

 

Halló og góðann daginn allir saman sem einn.

 

Nú er sumarið senn á enda komið og skóli að byrja.

En á móti eru bara 4 mánuðir í jólin. Sem er jákvætt.

 

Alltaf langar manni að vera massíft málefnalegur þegar maður erð að blogga og hafa eitthvað sem að lesandinn hefur virkilegan áhuga á að lesa. Eitthvað fréttnæmt og flott.

 

En aldrei þessu vant ætla ég að hafa sama gamla skástrik-bloggið.

Ekki það að það er ekki frábært. Það er það.

Gaman að lesa margar færslur og mikið um hlátur og svona.

 

Menningarnótt 2007 er að renna í hlaðið. Nánar tiltekið næstkomandi laugardag.

 

Mikið verður um húllum hæ og getur fólk valið á milli þess að fara á gus gus tónleika á nasa, sem verða ábyggilega massífir, fara á stórtónleika á höllinni þar sem verður eitthvað landslið af fólki að syngja og dansa og tralla fram eftir kvöldi, einnig getur fólk tekið massa-djamm niðrí höfuðborginni og gengið á milli staða og svona og svo síðast en ekki síst er hægt að tjilla heima og hafa það gott.

Sem er svolítið vanmetið, finnst mér. Að tjilla heima. Alltaf þurfa sumir að djamma endalaust.

 

Eins og með áramótin. Það eru alltaf svo miklar væntingar til áramótana. Sumir eru bara í maí bara að missa saur og fleirra yfir hvað það verður mikið djamm á áramótunum.

 

 eins og þessi hérna:

- greinilega eitthvað í kringum maí.

 

Bestu áramótin hjá mér eru yfirleitt þegar ég er ekki búinn að plana neitt og enda bara einhvers staðar.

 

En svona frá mér til ykkar, Kæru lesendur, þá finnst mér að við eigum aðeins að róa okkur í djamminu og færa okkur í betri stofuna og tjilla aðeins.

 

 

kv. Tómas Ingi 


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 19:22:49 / skastrik

Weztmaneyjar

Þjóðhátið 2007
og auðvitað sendir Skástrik Group menn á svæðið til að tékka á stöðunni og stemmninguni,
þeir sem fara verður
Sigurjón
Kristján
EINAR JÓNS
Davið
Beggi
ásamt Tedda,Frænku,Andreu,Sunnu og fl.
Sjáumst í dalnum og ölvun ógildir miðann
sogo

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 23:29:25 / skastrik

Leikplan

 

Ég hef ákveðið að standa undir orðum Jtan og skrifa færslu núna.

 

Vill byrja á því að þakka Sogo fyrir úrvals Slayer teiti með þema( einnig fyrir lánið á leðurjakka og hlýrabol), en það var haldið um helgi á heimili SOGO á hringbraut 68. (SOGO; TÓMAS; JÓNSSON; DABBI HJALTA; SBERG; PÚNZI) Ég hef beðið eftir samskonar kvöldstund í allt sumar og hefði ég viljað staldra við ögn lengur og njóta þeirra tóna sem boðið var upp á.
Enn SOGO fær rós í hnappagatið fyrir góðan slayer.

 

The image “http://www.metallicamp.de/extras/metal/slayer/slayer2.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

 

Næst á dagskrá er landsmót á fimmtudag, ég og Davíð vinnum nú að skotheldu leikskipulagi til að fara eftir, en Davíð hefur boðið aðstoð sína og ætlar að vera kylfurberi minn í þessu móti(davíð 9:10 á teig 1, fimmtudagur, mæting 1 klukkutíma fyrir teigtíma(8:10).

 


 

 Ætla að láta þetta gott heita enda klukkan orðin margt(Björn ingi ég leit núna á klukkuna og hún var 23:23.. ég er smeykur við þetta Björn)

 

kv sberg 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Klukkan
Roskilde
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1671 dögum
Könnun
Framlag Íslands til Eurovision